Skaftholt -
heimili í sveit
Sjálfseignarstofnunin Skaftholt í Skeiða og Gnúpverjahreppi er heimili og vinnustaður þar sem hæfileikar hvers og eins fá notið sín í sátt við lífið og náttúruna. Skaftholt var stofnað 1980 með það að markmiði að opna þroskaheftum og öðrum sem eru í þörf fyrir verndað umhverfi tækifæri til að takast á við líf og starf sem þroska hvern og einn í samræmi við getu og hæfileika.
Jarðvegurinn
Starfsemin er sprottin úr jarðvergi mannspeki Rudolf's Steiner og grundvallast á virðingu fyrir sköpunarverkinu og þeim heilbrigða kjarna sem býr í hverri mannveru. Starfið grundvallast á þeim gömlu sannindum að hver og einn læri sitthvað af öðrum við dagleg störf og sambýli.
Starf og leikur
Í samræmi við markmið sín er Skaftholt heimili, þar sem skiptist á starf og leikur. Tónlist, leiklist, handverk og samvera hvers kona er ríkur þáttur í heimilisbragnum. Ull er unnin heima, þvegin og kembd, ofið og spunnið úr henni yfir veturinn.
Fólkið
Líf og starf er eitt í Skaftholti. Þar lifa og starfa u.þ.b. 20 manns. Verkefnið er sameiginlegt; að rækja líf og starf í sameiningu eftir bestu getu hvers og eins, öllum til þroska.